Sameiginleg hæfniviðmið verkefna eru að nemendur geti:
- Unnið rannsóknar- og hugmyndavinnu tengda viðfangsefninu.
- Notað þann orðaforða sem viðfangsefnin krefjast.
- Nýtt sér þekkingu á verkum listamanna sem unnið hafa með viðfangsefnið.
- Unnið með lífríki og eiginleika landgerða á skapandi hátt bæði tvívítt og þrívítt.
- Útfært þekkingu sína í fjölbreyttan efnivið og aðferðir.
- Sýnt frumkvæði og kjark í vali á verkefnum, efniviði og aðferð.
- Viðhaldið handverksþekkingu.
- Sýnt og talað um verk sín.
- Fræðst um umhverfi sitt, náttúru og náttúruvernd gegnum verkferlið.
- Gengið vel um umhverfi sitt úti sem inni.
- Tekið tillit til annarra í hópvinnu og umræðum.
- Notað náttúruna og nærsamfélag sem sýningasal fyrir verk sín.
|