Manngert umhverfi - Verkefni 9e: Ég, þú og við – fjársjóðir fjölbreytileikans
Inntak og markmið: Í þessu verkefni er unnið með fjölmenningu og hvernig einstaklingurinn skapar sér sjálfsmynd og sérstöðu en er jafnframt hluti af hóp. Virðing fyrir manngildinu óháð uppruna, kyni og útliti er hér í fyrirrúmi þar sem allir skapa sameiginlegt verk hver með sínu persónulega framlagi. Áherslur: eru á virðingu fyrir einstaklingum, á samvinnu og samkennd. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Kara Walker, Ólöf Nordal og verkið Fuglar himins, Aðalheiður Eysteinsdóttir (efniviður) |