Skógur - Verkefni 2a. Gjafir jarðar – litarefni úr náttúrunni
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er nemendur fái að upplifa hvaða gjafir jörðin gefur okkur og við höfum ef til gleymt eða ekki þekkt. Í verkefninu gefst einnig tækifæri til útiveru, tilrauna og rannsókna með efnivið og aðferðir þar sem unnið er með náttúrulegan efnivið úr umhverfinu. Áherslur: Áherslan í þessu verkefni er á útikennslu í nærumhverfi, söfnun og rannsókn með vísindalegum aðferðum og framsetningu með aðferðum lista og handverks. Hugtökin óhlutbundin og lífræn form eru kynnt og aðferðir vatnslitunar og þrykks. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Listamenn: Hildur Bjarnadóttir, Bernd Koberling, Meredith Pardue, Ásgrímur Jónsson. Bækur og Fræðslumyndir: Tímaland/Zeitland (útg. 2000) eftir Eystein Þorvaldsson. Myndskreytt af Bernd, Koberling og [Þýsk þýðing Barbara Köhler] Íslensk flóra með litmyndum (útg. 1994) eftir Ágúst H. Bjarnason. Skógurinn og nýting hans (útg. 2001). eftir Stefán Bergmann, Gísla Þorsteinsson, Bjarna Þór Kristjánsson, Guðmund Magnússon og Ólaf Oddsson. Slóðir: http://www.meredithpardue.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Meredith Pardue [studio]- http://www.hometrainingtools.com/make-homemade-ink-project/a/1228/ Heiti síðu: Home science tools. The gateway to discovery http://www.ehow.com/how_8622749_make-natural-dyes-plant-pigments.html Heiti síðu: eHow – descover the expert in you http://www.ehow.com/how_5510265_make-natural-dyes-flowers-plants.html Heiti síðu: eHow – descover the expert in you |