Melar og berangur - Verkefni 7a: Dýraríkið- mótun
Inntak og markmið: Í þessu verkefni kynnast nemendur minknum og öðrum einkennisdýrum landgerðarinnar. Í verkefninu er unnið með mótun í leir eða annan efnivið þar sem hlutföll, sköpulag og áferð eru til skoðunar. Hvað er það til dæmis í aðlögun og sköpulagi minksins sem auðveldar honum veiðar? Hér er jafnframt unnið með innsetningu og ljósmyndun. Áherslur: eru á aðlögunarhæfni og sköpulag dýra. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Listamenn/handverksmenn:
Ólöf Nordal (innsetningar), Joanne Cooke, Petra Lloyd. Bækur: Leirmótun: leiðbeiningar fyrir kennara (útg. 1981) eftir Eddu Óskarsdóttur og Þóri Sigurðsson Children, clay and sculpture ( útg. 1983) eftir Cathy Weisman Topal Slóðir: http://www.joannecooke.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Joanne Cooke Sculpture http://www.veniceclayartists.com/ceramic-animal-art/ Heiti síðu: Ceramics and pottery arts and resousces. Pottery and ceramics featured articles. http://barnardcastlenest.org.uk/Artist/583261-petra-lloyd Heiti síðu: Nest Petra Lloyd |