Skógur - Verkefni 2e. Virkjun ímyndunaraflsins.-furðudýr og fuglar
Inntak og markmið: Í þessu verkefni er áherslan á ímyndunarafl og leik . Hér fá nemendur tækifæri til að skapa eigin dýr og gefa þeim eiginleika sem þeim finnst mikilvægir. Í verkefninu er einnig lögð áhersla á hugtakið innsetning og þjálfun í ljósmyndun á eigin verkum. Áherslur: Virkjun ímyndunaraflsins er hér í forgrunni þar sem nemendur skapa dýr úr eigin hugarheimi með fjölbreyttan efniviði og aðferðum. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg nálgun/útfærsla:
|
Listamenn: Romuald Hazoumé og verkin Dogone (1996), Agassa (1997), Citoyenne (1997), Moon (2003), Aðalheiður Eysteinsdóttir, Sara Vilberg, Davíð Örn Halldórsson, Helgi Þórsson, Anna Galtarossa, David Pan.
Bækur: Fuglar Íslands (útg. 1986) eftir Hjálmar R. Bárðarson Fuglar í náttúru Íslands (útg. 2005) eftir Guðmund Páll Ólafsson. Slóðir: http://www.studiolacitta.it/LaCitta/Artisti/AnnaGaltarossa.php Heiti síðu: Opinber heimasíða Anna Galtarossa, Studio la Città http://www.davidepan.com/ Heiti síðu: Opinber Heimasíða Davide Pan |