Mói - Verkefni 6e. Jurtanytjar- handverk - Jurtalitun - söfnun jurta
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er viðhalda handverksþekkingu og veita nemendum tækifæri til að kynnast notkunarmöguleikum íslenskra jurta. Einnig er mikilvægt í þessu verkefni að læra að umgangast jarðargróður með sjálfbærni í huga og af virðingu. Áherslur: á plöntuþekkingu og söfnun nytjajurta. Í verkefninu er einnig áhersla á myndgerð og framsetningu í vefnaði. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Hildur Bjarnadóttir, Ásgerðar Búadóttir, Stefán Jónsson frá Möðrudal , Eggert Pétursson, Georg Guðni. Bækur: Jurtalitun. Foldarskart í ull og fat. (útg. 2010) eftir Sigrúnu Helgadóttur og Þorgerði Hlöðversdóttur. Einfarar í íslenskri myndlist. (útg. 1990) eftir Aðalstein Ingólfsson. Íslensk flóra með litmyndum (útg. 1938) eftir Ágúst H. Bjarnason. Náttúran í nýju ljósi - plönturnar (1999) fræðslumynd,( nams.is) Slóðir: http://vefir.nams.is/textilmennt/index.htm Heiti síðu: Námsgagnastofnun Heimasíða |