Upp til fjalla - Verkefni 8c: Virðing fyrir dýrum-hreindýr- skart eða tölusmíð
Inntak og markmið: Hér er unnið með handverk, nýtingu og sjálfbærni út frá afurðum dýra. Markmiðið er að gera nemendum ljóst mikilvægi þess að nýta það sem til fellur ekki bara í handverki heldur almennt í lífi þeirra. Áherslur: á nýtingu afurða og virðing fyrir dýrum og því sem þau gefa manninum .Jafnframt er áherslan á sjálfbæra efnisnotkun, verkþekkingu og notagildi. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg nálgun/útfærsla:
Leikur: búa til hreindýraspor í snjóinn og strá í þau lituðu sagi. Slóð: www.joklamus.is Heiti síðu: Jöklamús |