Við sjó - Verkefni 10e: Ruslakista - mengun
Inntak og markmið: Í þessu verkefni er einnig unnið með mengun sjávar og hvað maðurinn getur gert til að sporna gegn henni. Plasteyjur fljóta nú um heimshöfin vegna athafna mannsins. Þessar eyjur og önnur mengun veldur dauða fjölda dýra sem lifa í eða við sjó. Nemendur eru beðnir að velta þessu fyrir sér og vinna hugmyndir að umhverfisverki sem vekur athygli á þessu málefni. Áherslur: útivera og hreinsun nærumhverfis, söfnun og flokkun . Unnin er hljóðgjafi eða veðurmælir úr afrakstrinum. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
|
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
Listamenn: Hrafnkell Sigurðsson og verkin (Conversions (2006), Uplift (2008), Solveig Egeland, Chris Jordan, Olga Bergmann og verkið Safn, Mark Dion og verkið Landfill (1999 - 2000), Sigurður Ó. Sigurðsson og verkið Containers. Hugmyndasíða fyrir óróa: http://www.sallyleebythesea.com/2011/05/coastal-cottage-favorite-five-finds.html Heiti síðu: Sally lee by the sea. Coastal lifestyle |