Valllendi - Verkefni 5c. Köttur úti í mýri – endurvinnsla
Inntak og markmið: Í þessu verkefni er áherslan á dýralíf í votlendi, mótun og endurvinnslu. Eftir rannsóknarvinnu nemenda og val þeirra á dýrir þurfa þeir að kynnast dýrinu, byggingu þess og lífsháttum. Listræn útfærsla þeirra byggir á einnig á ímyndunarafli og frjálsri sköpun þar sem ýkja má form og færa í stílinn. Áherslur: eru á tengsl við nærumhverfi, rannsókn og úrvinnslu sem sett er fram með aðferðum lista og handverks. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Micheal Schweigman og verkið Two bulls (2005), Sara Vilberg, Helgi Þórsson. Justin L‘Amie: http://pdxcontemporaryart.com/lamie Heiti síðu: PDX contemporary art. Justin L‘Aimiea Diana Beltran Herrera: http://www.designboom.com/art/paper-bird-sculptures-by-diana-beltran-herrera/ Heiti síðu: Designboom. Paper bird sculptures by Diana Beltran Herrera Slóðir: http://www.artforsmallhands.com/2010/04/papier-mache-birds.html Heiti síðu: Art for small hands. Papier mâche - Birds |