Votlendi - Verkefni 5a.
Speglun – eilífð Inntak og markmið: Í þessu verkefni er unnið með skynjun og fagurfræðilega upplifun nemenda í eigin umhverfi. Markmiðið er að sú upplifun skili sér í aukinni virðingu fyrir náttúrunni og vitneskju um það umgengni okkar um náttúruna í dag skilar sér áfram til framtíðar, jafnvel eilífðar. Nemendur fá einnig þjálfun í ljósmyndun og framsetningu. Áherslur: á útikennslu og skynjun auk tengingar við nærumhverfi. Unnið er með speglun og aðferðir við vatnslitum. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Yayoi Kusama, Hreinn Friðfinnsson, Jón Gunnar Árnason, Jeppe Hein, Claude Monet Bækur og fræðslumyndir: Gardner‘s Art through the ages (útg. 1996), Íslensk listasaga frá síðari hluta 21. Aldar (útg. 2011) í ritstjórn Ólafs Kvaran, Listaskóli Evrópu 4, fræðslumynd (nams.is) Slóðir: http://www.jeppehein.net/pages/project_id.php?path=publics&id=163 Heiti síðu: Opinber heimasíða Jeppe Hein http://giverny.org/monet/welcome.htm Heiti síðu: Welcome to Claude Monet‘s |