Valllendi - Verkefni 4d. Mynstur og dulmál – mósaík
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er að nemendur fái tækifæri til að nota efnivið úr náttúrunni til að skapa dulúð í formi tákna, mynsturs, tungumáls og leyndarmála með fundnu efni úr umhverfi þeirra. Áherslur: Áhersla er lögð á einkenni nærumhverfis nemenda, söfnun og flokkun og hvernig slíkt ferli getur orðið kveikja að verkum. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla
|
Listamenn: Ragna Róbertsdóttir og sýningin sjávarlandslag, Sonia King.
Bækur: Mosaics in a weekend (útg. 2001) eftir Martin Cheek Margt smátt gerir eitt stór – handbók um mósaík (útg. 2003) eftir Dagnýu Hrund Árnadóttur (B.Ed. verkefni ) Slóðir: Sonia King og verkið Coded message. Invisible ink. http://www.mosaicworks.com/gallery/artmosaics.html Heiti Síðu: Opinber heimasíða Sonia King. Mosaic artist http://www.mosaicmercantile.com/gallery/ Heiti Síðu: Mosaik mercantile. Gallery of mosaics |