Manngert umhverfi - Verkefni 9a: Nærumhverfi og samfélag - form og litir bygginga
Inntak og markmið: í þessu verkefni er megin áherslan á byggingar í nærumhverfi nemenda, hvernig þær koma nemendum fyrir sjónir, form þeirra og litir. Unnið er með „geometrísk“ form tvívítt og þrívítt, skuggamyndun og litafræði. Áherslur: á greiningu á byggingum í umhverfi nemenda þar sem þeir safna upplýsingum greina þær og vinna út frá á fjölbreyttan máta. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
Listamenn/arkitektar: Mondrian, James Rojas, Winy Maas, Olga Oreshyna. Bækur: Byggingarlist í augnhæð (útg. 2008) eftir Guju Dögg Hauksdóttur. Slóðir:http://drpop.org/2010/05/james-rojas-the-city-as-play/ Heiti síðu: Dr. Pop Blog. Grein: James Rojas: The city as play http://olga66.wordpress.com/my-works/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Olga Oreshyna. Eccentricity of woods http://www.architizer.com/en_us/blog/dyn/47128/winy-maas-and-the-why-factory-build-lego-city-that-explores-future-of-planning/ Heiti síðu: Architizer http://vefir.nams.is/listavefurinn/index.html http://www1.nams.is/myndmennt/ Heiti síðu: Námsgagnastofnun. Heimasíða |