Upp til fjalla - Verkefni 8d: Mýkt og harka –geta fjöll verið mjúk? Skúlptúr
Inntak og markmið: Markmið þau sömu og hér að ofan. Útfært í textílvinnu með áherslu á þjálfun í saumavél. Hugsanleg nálgun/útfærsla: Kynning á viðfangsefni, úti eða inni Kveikjur og umræður Gönguferð með umsjónarkennara eða list- og verkgreinakennara. Ganga á fjall ef það er mögulegt Taka með teiknispjöld og myndavél Nemendur skoða eigin fjallahring/sjóndeildarhring Skrá niður, ljósmynda og skissa Formsköpun – einföldun forms Yfirfært á tvöfalt vefjarefni (textíllitur, bútasaumur, útsaumur) Saumað saman og fyllt með tróði Kveikjur þær sömu og í verkefni 8b. |