Manngert umhverfi - Verkefni 9c: Byggingar í náttúru – líkanasmíð
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er að kynna fyrir nemendum hvernig byggingar og manngert umhverfi hefur áhrif á náttúruna og öfugt. Er hægt að vinna með náttúrunni í þessu samhengi án þess að ganga á hana? Nemendur fá tækifæri til að vinna líkan að velja stað í umhverfi sínu og hanna byggingu út frá því umhverfi. Áherslur: á tengsl bygginga og náttúru og greiningu eigin umhverfis í því samhengi. Áhersla er einnig á sjálfbæra efnisnotkun (t.d. torf og grjót) og endurvinnslu og nýtingu nærumhverfis til framsetningar og ljósmyndunar. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Arkitektar /byggingar:
Katrín Sigurðardóttir og verkið Boiserie (2010), Frank Lloyd Wrihgt, Högna Sigurðardóttir, danska hönnunarteymið benandsebastian, Elena Belmann, Matali Crasset, Bláa lónið, Ráðhús Reykjavíkur, Sundlaugin á Hofsósi Bækur: Byggingarlist í augnhæð (útg. 2008) eftir Guju Dögg Hauksdóttur. Creating the future. Ideas on architecture and design education.(e.d.) Arrki. School of architecture for children and youth. Ritstjórar: Pihla Meskanen og Niina Hummelin. Slóðir: http://www.the-house-plans-guide.com/building-architectural-models.html Heiti síðu: The house plan guide. Building architectural models http://www.benandsebastian.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Benandsebastian http://www.planetarchitecture.com/architects/frank-lloyd-wright/frank-lloyd-wright-fallingwater-app.html Heiti síðu: Planet Architecture http://www.elenabelmann.de/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Elena Belmann http://www.matalicrasset.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða matali crasset |