Hraun - Verkefni 1e: Þráður úti og inni- samskipti og graffití
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis tengist köngulónni og lífsháttum hennar, hvernig hún tengir sig við staði og býr sér bú. Hér fá nemendur tækifæri til að líkja eftir henni með þráðvinnu og tengingum við umhverfi og fólk. Áherslur: Áhersla í þessu verkefni er á tengingar og tengsl og hvernig skapa má tengsl með þræði, bæði táknræn tengsl og raunveruleg. Nemendur fá tækifæri til tilrauna með frjálst hekl, fingraprjón og fleira til að tengjast nánast umhverfi sínu og því fólki sem sem skiptir máli í lífi þeirra. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
Listamenn: Davíð Örn Halldórsson (graffity), Nikki Rosato og verkið Underwire: http://www.nikkirosato.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Nikki Rosato Bækur: Sigríður Ásta Árnadóttir. (2012). Heklað, prjónað og endurskapað, Tinna Þórudóttir Þorvaldsóttir. (2011). Þóra: heklbók Slóðir: http://www.streetartutopia.com/?p=3554 Heiti síðu: Street art utopia http://knitthecity.com/ Heiti síðu: Knit the city |