Valllendi - Verkefni 5e. Verndun votlendis - skurðir og tún - bútasaumur
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er fyrst og fremst að vekja athygli nemenda á mikilvægi votlendis fyrir dýralíf og vistkerfi náttúrunnar. Jafnframt eru þeim kynntar leiðir til að setja fram þekkingu sína með skapandi aðferðum og handverki. Hér er áherslan á bútasaum og frjálsan útsaum (crazy quilt). Áherslur: Hér er lögð áhersla á endurheimt votlendis í gegnum rannsókn þar sem skoðaðir eru fletir og línur í landslagi með sjónarhorn úr lofti. Unnið með hugtakið“ geometria“. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Ólafur Elíasson og verkið Green river (2000) keith barrell (quilted landscape) http://www.kbarts.co.uk/Surfaces.htm Heiti síðu: Opinber heimasíða Keith Barrel arts Maya Lin: http://www.mayalin.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Maya Lin Studio John Dahlsen (Plastic bag art and prints) http://www.johndahlsen.com/thumbs/plastic_bags.html Heiti síðu: Opinber heimasíða John Dahlsen. Environmental artist and contemporary painter Bækur: Yfirsýn. (útg. 2011) eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Kortabók handa grunnskólum (2012 ), nams.is Jörðin (útg. 2005). Aðalritstjóri James F. Luhr Slóðir: Þær sömu og í verkefni 5b. |