Verkefnið er unnið á meistarastigi í kennslufræðum list- og verkgreina við Menntavísindasvið Háskóla Íslands undir leiðsögn Allyson Macdonald og með ráðgjöf frá Svanborgu R. Jónsdóttur. Vægi ritgerðarinnar er 30 einingar (ECTS).
Í seinni hluta ritgerðarinnar sem saman stendur af verkefnasafni, var haft samráð við Sólrúnu Harðardóttur líffræðing, kennara og höfund kennslubókarinnar Líf á landi á. Ég þakka þeim ómetanlega aðstoð í vinnuferlinu. Ásthildi B. Jónsdóttur kennara og hjónunum Hafþóri Guðjónssyni og Þorgerði Hlöðversdóttur þakka ég sérstaklega fyrir góðar ábendingar. |
Síðast en ekki síst vil ég þakka öllum börnum sem ég hef kynnst á kennsluferli mínum, börnum sem hafa með áræðni sinni, leik og sköpunargleði vísað mér veginn við gerð þessa verkefnis.
|