Hraun - Verkefni 1d: Landslag – mótun
Inntak og markmið: Ísland er ung eldfjallaeyja sem orðið hefur til við eldsumbrot. Í þessu verkefni fá nemendur tækifæri til að læra um hvernig landið myndaðist og skapa eigið land sem býr yfir eiginleikum sem þeir telja mikilvæga fyrir þá sem þar búa. Áherslur: Í þessu verkefni er áherslan á landmótun eða hvernig land getur orðið til og fjölbreytileika landgerða. Hugtökin skali, form og rými eru útskýrð og nemendum kynntar leiðir til að skapa saman sitt eigið „míní“ land eða landslag. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Listamenn: Halldór Ásgeirsson og verkið bræðralag, Jóhann Eyfells, Katrín Sigurðardóttir og verkið High Plane (2007), Jóhannes Kjarval, Esther van der Bie. Slóðir: http://mynd.blog.is/blog/mynd/entry/739153/ Heiti síðu: Myndlistafélagið Maya Lin: http://www.mayalin.com/ Heiti síðu. Opinber heimasíða Maya Lin Levi van Veluw: http://www.levivanveluw.nl/work/landscapes Heiti síðu: Heimasíða Levi van Veluw - official website Su Blackwell: http://www.sublackwell.co.uk/portfolio-book-cut-sculpture/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Su Blackwell. Portfolio book – cut sculpture |