Mói - Verkefni 6b: Safn – bók
Inntak og markmið: Í þessu verkefni er unnið með söfnum, flokkun, varðveislu og skrásetningu þar sem litið er til gamalla aðferða eins og þurrkun og pressun blóma. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess að til séu heimildir um lífverur sem jafnvel gætu horfið af yfirborði jarðar. Nemendur kynnast aðferðum til að setja fram þekkingu sína á skapandi hátt. Áherslur: á útiveru, söfnun gagna, greiningu, flokkun og varðveislu. Nemendur kynnast einfaldri bókagerð. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
|
Listamenn/handverksmenn:
Olga Bergmann, Shooshie Sulaiman (Emotional library), Sölvi Helgason, Eggert Pétursson, Lyndie Dourthe, Helen Frances, Mary Delany, Richard Arfsten. Bækur og fræðslumyndir: Íslensk flóra með litmyndum (útg. 1938) eftir Ágúst H. Bjarnason. Náttúran í nýju ljósi – plönturnar (1999) Fræðslumynd eftir David Stafford (nams.is) Slóðir: http://this.is/olga/natural_history_safn.html Heiti síðu: Opinber heimasíða Olga Bergmann. Natural Hystory Museum http://lyndiedourtheworks.blogspot.fr/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Lyndie Dourthe http://www.designsponge.com/2012/02/diy-project-giant-paper-flowers-from-ruche.htm Heiti síðu: Design sponge. Diy project: Giant paper flowers by Kate Pruitt http://richardarfsten.com/sculpture/threedsculpture/giantflowers.html Heiti síðu: Giant flowers – Richard Arfsten og opinber heimasíða Richard Arfsten http://www.abstractsculpture.com/sculpture/yardsculpture/yardsculpture_index.html Heiti síðu: Richard Arfsten – Bloom again (yard sculpture) |