Mói - Verkefni 6a. Formfræði –þúfa
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er að nemendur kynnist og vinni með form í íslensku landslag. Hér er það þúfan sem oft er ráðandi form íslenska móans. Í verkefninu vinna nemendur með pósitíf og negatíf form og kynnast liststefnunni „Op Art“ og myndvinnslumöguleikum tölvunnar í þessu samhengi. Áherslur: Hér er lögð á formskoðun í landslagi, formfræði og listastefnuna „Op Art“. Unnið er með línu, hæðarlína og kort og framsetning upplýsinga með mismunandi aðferðum. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg útfærsla:
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu
Listamenn: Finna Birna Steinsson og verkin Út um stéttar(1994), Tilraun um þúfu (1996), Féþúfur (2000), Maya Lin, Hans Haacke og verkið Grass grows (1969), Victor Vasarely, Bridget L. Riley Bækur: Dynamic form in nature (útg. 2003) eftir David Wade Slóðir: http://www.finnabirna.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Finna birna Steinsson http://www.bridgetriley.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Bridget Ryley http://www.op-art.co.uk/bridget-riley/ Heiti síðu: Op-art.co.uk. http://www.vasarely.com/ Heiti síðu: Official website of Victor Vasarely |