Hraun - Verkefni 1a. Varðveisla og tími – afsteypa í sand, leir eða pappír
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á það hvernig jörðin geymir upplýsingar um þær lífverur sem hún hefur alið. Tíminn er þar mikilvægt hugtak og sýnir hvernig við getum lesið jarðsöguna aftur í aldir. Umhverfisvernd og umgengni okkar um náttúruna er hér lykilatrið til að vernda þær upplýsingar sem náttúran býr yfir. Áherslur: Í þessu verkefni er áhersla á útiveru þar sem nemendur geta safnað sýnishornum úr náttúrunni og rannsakað form þeirra og eiginleika. Nemendum eru kynntar aðferðir til skrásetja og varðveita þessar upplýsingar og þekkingu sína með aðferðum lista og handverks. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
|
Listamenn: Rósa Gísladóttir, verkið Still life in Rome (2006), Christopher McHugh, Eggert Pétursson, Georgia O‘Keeffe, Guðjón Ketilsson, Robert Rauschenberg, Katrín Sigurðardóttir og verkin Farmur (1999) og Haul (2005).
Bækur: Íslensk flóra með litmyndum (útg. 1994) eftir Ágúst H. Bjarnason. Jörðin og furður hennar (útg. 1992) eftir Steve Parker. [Íslensk þýðing Árni Sigurjónsson] Slóðir: http://www.livingfossils.co.uk/Gallery.html Heiti síðu: Gallery – Christopher McHugh – Living Fossils |