Upp til fjalla - Verkefni 8a: Fjallganga - formskoðun og mótun
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis er að nemendur kynnist eigin umhverfi út frá víðu sjónarhorni og þjálfist í að greina form og liti. Ein leið til þess er að ganga á fjall sem líka er táknræn athöfn. Þaðan sést vítt og breytt sem víkkar sjónarhorn okkar bókstaflega og táknrænt. Ef ekki er fært á fjöll dugar að fara út og skoða það sem fyrir augu ber. Úrvinnsla slíkra athugana getur verið á ýmsu formi, hér er unnið með gifsmótagerð og leirvinnu. Áherslur: á formskoðun fjalla, mjúkt og hart form, heitir og kaldir litir og snjólína. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. Hugsanleg útfærsla:
Valmöguleikar nemenda og kennara í útfærslu:
|
Listamenn: Richard Long, Georg Guðni, Stefán Jónsson frá Möðrudal, Jón Stefánsson, Sara Vilberg (aðferðir) Bækur: Einfarar í íslenskri myndlist (útg. 1990) eftir Aðalstein Ingólfsson. Íslensk listasaga frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. Aldar. (útg. 2011) í ritstjórn Ólafs Kvaran Slóðir: http://www.richardlong.org/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Richard Long http://vefir.nams.is/listavefurinn/index.html http://www1.nams.is/myndmennt/ Heiti síðu: Námsgagnastofnun Heimasíða |