SKógur - Verkefni 2b. Uppáhalds tré eða planta – Hluti og heild
Inntak og markmið: Markmið þessa verkefnis eru að nemendur vinni rannsóknarvinnu út frá tré eða plöntu sem þeir velja sjálfir, form hennar og byggingu en jafnframt að kafa dýpra og skoða yfirborð og innri strúktúr. Hér gefst nemendum einnig tækifæri til að læra um lífshætti, heimkynni og eiginleika plötunnar sem þeir völdu og setja fram þá vitneskju á skapandi hátt. Áherslur: Áherslur þessa verkefnis eru útikennsla í nærumhverfi þar nemendur kynnast þeim gróðri sem þar vex. Þeir fá tækifæri til til að velja sína uppáhaldsplöntu og skapa út frá því vali eigin plöntu með nýja eiginleika. Hugtökin micro og macro eru útskýrð og innri og ytri bygging. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað. |
Hugsanleg nálgun/útfærsla:
Listamenn: Ívar Valgarðsson og verkið til spillis, kimberly conrad, Konstantin Dimopoulos. Bækur og fræðslumyndir: sjá verkefni 2a. Slóðir: http://en.wikipedia.org/wiki/Konstantin_Dimopoulos Heiti síðu: Wikipedia. The free encyclopedia http://kimberlyconradfineart.com/collections/36677 http://kimberlyconradfineart.com/ Heiti síðu: Opinber heimasíða Kimberly Conrad. Contemporary landsscape artist http://floraislands.is/ Heiti síðu: Flora og Iceland – Flóra Íslands Verkefni 2c. |