Jarðvegur - Verkefni 3b. Undir yfirborðinu - stækkun
Inntak og markmið: Hér er unnið með hið smáa (áferð og lína) í teikningu og myndvinnslu þar sem rannsókn og upplýsingaleit nemenda er sett fram á fjölbreyttan hátt. Hér má bæði nota hreina teiknivinnu þar sem unnið er stækkun og skala en einnig myndvinnslu í tölvu þar sem skapa má ímynduð furðudýr. Áherslur: Hér er lögð áhersla á smáatriði fínteikningu og áferð. Eftir kynningu kennara (sjá kveikjur) og umræður hefst vinnuferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru á hverjum stað.
|